ÞJÓNUSTA Í BOÐI
Skápar fyrir farangur og pakka
Viltu losa þig við farangurinn á meðan þú röltir um bæinn eða skilja eftir pakka sem einhver annar sækir síðar?
Geymdu töskurnar þínar eða annan farangur miðsvæðis í Reykjavík á meðan þú sinnir þínum erindum. Þú getur líka skilið pakka eða aðra hluti eftir í skápunum og fengið aðra til að sækja þá. Það eina sem þú þarft er að gefa upp skápanúmerið og lykilorðið sem þú hefur valið og aðrir geta þá sótt það sem þú hefur skilið eftir.
Lyklahólf
Ertu að leigja út íbúðina á Airbnb eða ætlar vinkona þín að nota bílinn á meðan þú ert erlendis?
Skildu lyklana eftir í öruggu lyklahólfi á BSÍ. Þú velur þér einfaldlega lykilorð og sendir það á viðkomandi sem ætlar að sækja lyklana. Þetta er einföld, örugg, þægileg og ódýr leið til að koma lyklunum þínum til næsta aðila. Það eina sem þú þarft er að gefa upp númer hólfsins og lykilorðið sem þú hefur valið og aðrir geta þá sótt lyklana sem þú hefur skilið eftir.